Tónleikar fimmtudag

Mæting í nýja salinn í safnaðarheimilinu á Hellu kl. 13.00 við ætlum að hita upp og renna yfir lögin með undirleikara. Við syngjum bara 2 lög, vetrarnótt og getur verið. Við ætlum að vera í kórkjólunum og lituðum sokkabuxum og skrauti ;-)

Hellubúar mega koma kl. 11 og aðstoða með að raða stólum.


Næst á dagskrá

Æfing þriðjudag 17.4. Kl. 20.00 í Hvolnum við æfum fegurðardrottninguna, getur verid og vetrar nótt.

Muna kökubasar á föstudag allar að vera duglegar að skila kökum ;-)

Allar að koma með 2 kökur takk ;-)

Aðalfundur SS Föstudag, nýr tími !!!

Ath að það verður hitað upp kl. 18.30 þá verða allir að vera mættir:-)

Þær sem eiga að vinna sjá skjal um hvernær þær eiga að mæta.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

SS Aðalfundur Föstudag 23.3.

Við ætlum að syngja

Fegurðardrottninguna
Vetrarnótt
Good morning starshine
Lean on me
Getur verið

Við syngjum í kórkólum og skrauti ;-)

Þær sem ætla bara að syngja mæta kl 18.30. við hitum upp, berum þá fram súpu og stefnum á að syngja kl. 19.30. En það velltur auðvita aðeins á því hvernær fundurinn er búinn :-)


Góu gleði laugardag 17.3.

Allar að mæta í littla salinn í Hvolnum kl. 19.45.
Við syngjum 20.30
Við ætlum ekki að vera í kórkjölum en gjarna einhvað fancy frá 1950 til 80 ;-)

Syngjum Fegurðardrottninguna ásamt tvemur textum sem Margrét Tryggva kom með.

Kv. Olga


Næsta æfing 13. mars

Allar að mæta kl. 19:30 á næstu æfingu.  Hitum okkur upp og förum svo á Kirkjuhvol og syngjum nokkur lög.  Verðum svo komnar aftur í Hvolinn kl. 20:30 til að æfa.  Þá verður opin æfing og er öllum sem hafa áhuga frjálst að koma og kynna sér starfið okkar, endilega látið það berast og hvetjið fólk til að kíkja við hjá okkur.

Æfing í kvöld, 6. mars!

Villa í síðustu færslu!  Það verður æfing í kvöld 6. mars, sópran mætir kl. 19:30, hinar kl. 20:30.  Hlökkum til að sjá ykkur!

Frí Þriðjudag 6.3.2012

Takk fyrir síðast.

Næsta æfing 13.3. þá mætir Sópran snemma ;-) Vera búnar að rifja upp fegurðadrottningu, vetrarnótt og kíkja á getur verið í "bókini hans Stebba"


mæting laugardaginn 25 feb!!!!

heilar og sælar dömur :)

mæting er stundvíslega 13:45 upp á laugarland...hitum upp í 15 min í matsalnum...og svo fáum við 15 mín til að æfa í salnum kl14:00   MIKILVÆGT AÐ ALLAR MÆTI 'A R'ETTUM T'IMA!!!!  hlakka til að stjórna ykkur....við syngjum yfir regnboganum....good morning sunshine og lean on me. knús í hús kv Maríanna


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband